koma sæl og bless esska/.
besta vinkona
16.08.2006 19:12:27 / gudrun

ný síða

http://gua.bloggar.is/    ákvað að prófa nýtt.... kíkið og kommentið..;-)

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 11:42:24 / gudrun

Ung stúlka skrifar...

Í fyrsta sinn!!

Ég hallaði höfðinu aftur á bak. Ég vissi hvað hann vildi. Ég óskaði að þessu liki sem fyrst, NÚNA!!  Hann lofaði að fara varlega, en svo spurði hann með rámri röddu, hvort ég gæti opnað svolítið meira. Svo skeði það, mér fór að blæða og það var hræðilega sárt, en hann sagði að þetta væri bráðum búið.......... stuttu seinna stóð tannlæknirinn með skemmdu tönnina í hendinni...


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 12:15:01 / gudrun

húsið mitt brúnt og hvítt...;-)

jæja þá er ég að vera búin að mála einan umferð á húsið mitt á samt eftir að mála nærri alla gluggna    þetta á vonandi eftir að verða voða flott...

Við fjölskyldan ætlum að fara til Akureyrar yfir verslunarmannhelgina erum ekkert búin að fara neitt í fríinu okkar að vísu tekur Steini ekkert sumarfrí þetta árið þannig að það er ágætt að breyta um umhverfi þó ekki sé nema eina helgi... já verð svo að monta mig að því að ég er að verða hestaeigandi ég keypti hann Bósa minn með pabba mínum :haha::haha::haha::haha:   algjör sæla...:haha::haha:það verður vonandi til þess að maður verður duglegri að fara upp í hesthús og fara á bak og leifa stelpunum að fara oftar og halda þeim við efnið eftir reiðnámskeiðið sem þær fóru á....

Svo vil ég að lokum þakka öllum ættingjum fyrir góða og skemmtilega ættarmótshelgi það var alveg rosalega gaman og heppin með veður.... takk fyrir mig.....

Ætla að fara að smyrja nesti fyrir útileguna knús og kram/.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 16:19:47 / gudrun

hvar er sumarið?? ..loksins þegar ég er komin í frí..!

já aldeilis búið að vera mikið að gera á þessu heimili undanfarið. Stelpurnar eru á leikjanámskeiði, Lísbet Óla er búin að vera á sundnámskeiði og hafði svo gaman af því.. svo eru þær báðar á reiðnámskeiði núna og það er nú bara gaman hjá þeim og þær eru að standa sig alveg rosa vel......:D:D:D

Ég er loksins komin í langþráð sumarfrí.. langar svo rosalega að mála húsið mitt í sumar en það verður nú sennilega ekki mikið úr því þar sem sumarið og sólin hljóta að hafa farið í verkfall því ekki hefur sést mikið af því hér hjá okkur.... búið að vera grenjandi rigning og þá mein aég grenjandi!!!  en ég keypti mér prufu af málningu sem er kastaníubrún á litinn.. vonandi fæ ég litinn sem ég er að leita að. Langar svo að hafa það aftur viðarlitað eins og það var einu sinni...

Ég fór í gær og var í tímatöku hjá hlaupurum sem hlupu frá Stapadal til Sveinseyrar. semsagt fyrir Nes. og eins og ég sagði áðan þá var úrhelli, sem betur fer voru Sigmundur og Dýrleif búin að setja upp tjald sem við g´tum farið inn í hlýjað okkur.. annars var þetta nú samt bara gaman og þvílíkar hetjur þessir hlauparar.....

En svo átti að vera strandbl um helgina en því var frestað svo nú bíður maður bara eftir sumrinu svo hægt sé að halda það!! Ég fékk frábæran meðspilara Dýrleif ætlar að þola mig í þennan tíma sem það stendur yfir.. takk fyrir það vinkona! :P:P:P

En það er best að hætta núna og reyna að gera eitthvað af viti.... bless í bili..


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 17:23:31 / gudrun

tjelan komin á fertugs aldurinn........

Takk fyrir allar góðar kveðjur á afmælisdaginn bæði á blogginu og smsi... Ég átti alveg magnaða helgi með systir minni það var bara gaman hjá okkur!!!   8)

Steini fór að vinna á Djúpavogi um helgina og áður en hann fór sagði hann það sem ég er búin að bíða eftir svvvoooo lengi eftir...... kvaddi mig með því að segja " viltu giftast mér ?? "    og nú er ég bara í skýjunum..... við ætlum sem sagt að gifta okkur á næsta ári 7. júlí ´07 þannig að það er eins gott að þið farið að taka frá þennan dag og skrifa hann í dagbókina ykkar....!! ;);)

Já verð svo að monta mig að því að ég tók þátt í 17. júní söngvarakeppninni söng lagið Afgan, með gítarinn og munnhörpuna og kom sá og sigraði lenti í 1. sæti!!!!  Þokkalega montin núna. :haha::haha::haha:

En það er ekki gott að vera of montin svo ég hætti núna bið að heilsa ykkur kæru vinir...... knús og kram/.


» 13 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 13:54:18 / gudrun

Hver kannast við þetta???

 

 



Sokkar hér og sokkar þar sokkar út um allt og allsstaðar, inni í stofu, inni í eldhúsi, inni á baðherbergi, uppi í sófa, undir sófa, upp á borði og undir borði og gjörsamlega í öllum skúmaskotum…… ég meina það ég er að finna sokkana af mínum stelpum út um allt hús og svo er bara sagt “MAMMA HVAR ERU SOKKARNIR MÍNIR???” það er orðið partur af programmet að versla sokka á þær þegar maður fer í innkaupaferðina á ísafjörð sem er einu sinni í viku til þess að versla í matinn…..   alveg óþolandi… og nú er sú eldri farin að fara í mína sokkaskúffu og ná sér í sokka þar því hún á aldrei til hrein pör… ég tók mig til og hreinsaði til í herberginu hennar um daginn svo ég gæti ryksugað þar inni og ég fann 5 sokka ofan í dótakörfunni alla af sitt hvorri sortinni… því þegar hún tekur sig til og þrífur í herberginu sínu þá er bara öllu kastað ofan í körfu og skúffu..!!   Og ekki nóg með það að þegar hún á ekki sokka par þá fer hún í sitthvorn sokkinn og er bara alveg sama… geggjað cool!!!  

 

 



Langar svona að vita hvort fleiri en ég lendi í þessu með börnin sín.. væri ekki verra ef þið ættuð einhver góð ráð þá endilega deila þeim með mér… takk, takk

 

 



Knús og kram/.


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 14:28:22 / gudrun

06.06.06

Það er aldeilis stór dagur í dag,  Bubbi Morthens 50 ára og það sem meira er að Steini er búin að þola mig síðustu 12. ár..... og nú bíð ég bara spennt eftir að hann biðji mig að giftast sér það hlítur að fara að líða að því... 

Við fórum í gær og rökuðum fótboltavöllinn okkar, við mættum að vísu ekki fyrr en eftir hádegi og hætttum ekki fyrr en allt var búið vorum komin heim um klukkan 22.00 í gærkvöldi þá urðum við að kíkja aðeins á mömmu og Hólmgeir því þau voru að koma heim frá sódóma Reykjavík eftir það voru allir orðnir svo lúnir að ég gat ekki einu sinni vakið prinsessurnar mínar í morgun.... og þegar ég hringdi svo heim í morgun klukkan rúmlega 10. þá var ég að vekja þær... hehe.

 Núna er bara verið að hafa það næs, legið upp í sófa með popp og vatn og horft á video.... það er svo ömurlegt veður úti svo þetta var besti kosturinn... og núna ætla ég að njóta þess með þeim,

knús og kram/.


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 18:22:28 / gudrun

:-) :-)

Ég fór á alveg magnaða sýningu í gærkvöldi, "alveg briljant skilnaður " með Eddu Björgvinsdóttir þvílík snilld hún er ekki bara góður leikari hún er algjör listamaður!! ótrúlegt hvernig hún töfrar þetta fram úr erminni konan... mæli sko með þessari sýningu og ef þetta kemur út á spólu ætla ég sko að kaupa hana...

En við skruppum í bæin um síðustu helgi, byrjuðum á því að fara til óla afa en hann var ekki heima þa´var haldið rakleitt heim til brósa míns þar var okkur boðið í grillmat geggjað góðgæti uummm og eftri matinn var haldið á fótboltaleik í Kaplakrika þar sem FH tók á móti Akranesi og auðvitað unnu okkar menn....ógó gaman..  á föstudeginum fórum við í glæsilegt afmæli hjá Petu systir hans Steina, takk kærlega fyrir okkur Peta mín!! Eftir afmæli var svo haldið á Pleyers með systkinum mínum og mökum á ball með "á móti sól"..  bara gaman!!   Nú og svo fórum við í annað afmæli á laugardeginum hjá Katrínu Mist sem hélt upp á 7.ára afmæli með stæl og svo gaman að hitta ættingjana... takk fyrir okkur þar líka..

Lísbet mín fékk að fara með Birnu vinkonu sinni í sveitina og ætlar að gista í nótt búið að bíða lengi eftir þessu og loksins kom að því. voða dugleg litla konan mín!!

En það er best að fara að finna eithvað að elda fyrir kallinn..

bið að heilsa í bili knús og kram/.          


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 23:52:44 / gudrun

smá færsla.

já kannski kominn tími á smá blogg.. ég var að koma heim, Eva danskennari hélt fyrir okkur í línudanshópnum lokahóf fengum súpu og brauð, kaffi og konfekt.. svaka gott svo voru dansaðir línudansar á eftir.. ógó gaman. 
http://www.smileycentral.com/?partner=ZSzeb008_ZS" target="_blank">http://smileys.smileycentral.com/cat/36/36_22_24.gif" alt="Cowgirl" border="0">
Við fórum til Reykjavíkur helgina 12-14 maí o gkepptum á íslandsmeistarmóti í línudönsum lentum í 5. sæti af 7 líðum o gveorum bara montnar með það, fórum svo út að borða á Caruso geggjaður veitingastaður sem Þrúða á ketilseyrir er eigandi af ásamt manninum sínum það var sko bara gaman og geggjaður matur og allt svo kósý, takk kærlega fyrir mig!!!  já og auðvitað var farið í búðir fórum í kringluna og samáralindina og svo aftu rí smáralindina...hehehe   http://www.smileycentral.com/?partner=ZSzeb008_ZS" target="_blank">http://smileys.smileycentral.com/cat/7/7_18_5.gif" alt="Shopping 2" border="0">   alveg kaupóðar enda nýtt kortatímabil og búið að borga út orlofið...  stelpurnar fengu að vera hjá Þórey og Ella á laugardeginum því Steini var að vinna (ekki veitir af þegar maður á konu sem kann ekki að spara)  og þær voru sko vaknaðar fyrir allar aldir og komar í hús hjá þeim klukkan 8….  Þær voru  orðnar svo spenntar, held samt að sú eldri hafi vakið systir sína og drifið sig á stað því hún (Lísbet) elti Ella heim til Sigga Þóa og Möggu þar sem var leikur í gangi og settist þar niður og steinsofnaði og það var sko ekki séns að vekja hana sama hvað fólk reyndi, en það var sossum ágætt hún var þá ekki að trufla neinn á meðan.   hehe  

Nú er skvísan búin að læra að hjóla án hjálpardekkja og hjólar gallvösk hér um hlíðargötuna henni er nebblega bannað að fara niður brekkuna hún kann ekki alveg nógu vel á bremsurnar og að ég tali nú ekki umferðina...úffpúff  En hún fær að hjóla í leikskólann á morgnana með mömmu hlaupandi á eftir sér...http://www.smileycentral.com/?partner=ZSzeb008_ZS" target="_blank">http://smileys.smileycentral.com/cat/7/7_9_5.gif" alt="Bike Riding" border="0">

Já og svo stefnir allt í það að við fjölskyldan séum á leiðinni suður á næstu helgi í afmæli hjá systir hans Steina...  bara gaman!   Þannig að það er nóg að gera á þessum bæ. Skólinn er búinn og ég er bara nokkuð sátt við sjálfa mig ég fékk 9 í lokaeinkun í félagsfræði en get ekki séð hvað ég fékk fyrir siðfræði..

http://www.smileycentral.com/?partner=ZSzeb008_ZS" target="_blank">http://smileys.smileycentral.com/cat/18/18_3_207.gif" alt="Volleyball 1" border="0">
Ég fór á fimmtudaginn niður á strandblaksvöll að raka grjót og tína burt erum búin að fá þrjú hlöss að sandi sem bíður eftir að láta dreifa úr sér… en eins og veðrið er búið að vera síðustu daga þá er nú ekki spennandi að vera þarnar niðurfrá leiðinda rok og snjókoma inn á milli.
  
Jæja það er best að hafa þetta ekki mikið lengra í bili ætla að fara að hvíla mig er ennþá að jafna mig eftir gærkvöldið drakk heldur mikið áfengi og fæ alveg að finna fyrir því núna… svo ég segi bara bless í bili….

Knús og kram/.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 23:04:10 / gudrun

skondið.. skrifið endiega niður ykkar niðurstöður...

Veldu mánuðinn sem þú fæddist

 

 

 

"Ég slefaði á Davíð Oddson af því að mamma sagði mér að gera það.."

Veldu mánuðinn sem þú fæddist

Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaði á


Veldu núna afmælisdaginn þinn
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskifting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu Þriðja stafinn í eftirnafninu þínu

A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Afvþví mér finnst egg góð
H- Afþví að ég er á sýru
I- Afþví ég misteig mig
J- Afþví ég er með vörtu
K- Afþví mér líkar Cheer
L- Afþví að ég var skökk/skakkur
M- Afþví ég var full/ur
N- Afþví að mamma sagði mér að gera það
O- Afví ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Afví að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Afþví að ég elska náttfata party
W- Afþví að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Afþví að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahárum

-Skrifaðu svo í skoðanir hvað þú fékkst út, haha..

 

 



 


 það vantar Æ svo ég tók bara staf númer 2 ímínu eftirnafni....:haha::haha:

knús og kram/.  :haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 22:29:14 / gudrun

ógó gaman í Danmörku..

já miklu fargi af mér létt ég er búin með prófið var að klára og senda úffpúff ógó leiðinlegt að vera svon aá síðasta snúning ég er búin að draga þetta svo á langinn þorði ekki að opna það en svo er maður svo feginn þegar þetta er búið og núna er maður bara kominn í sumarfrí í skólanum jibbýjei...

Það var alveg geggjað gaman í danaveldi skoðuðum þrjá leikskóla sem voru hver öðrum flottari og bara gaman að sjá og skoða og læra eitthvað nýtt... Fórum svo auðvitað í tívolíið það var geggjað ég fór í tvö tæki rússíbanann og fallturninn (gyllta turninn) þvílíkt og annað eins hef ég aldrei upplifað Hulda Lára plataði mig með sér og ég sé sko ekki eftir því... þið getið séð myndir af því á þingeyri.is. við fórum allar saman út að borða og ég get sko alveg mæl með þessum stað hann var akkurat fyrir svona fólk eins og mig allir gátu fundu eitthvað við sitt hæfi kjúlla, naut, svín og allskonar grænmeti og meðlæti. mæli með honum fyrir hvern sem er, hann er á nýhöfn og heitir öl og grill..

En ég er doldið fúl ég get ekki sett inn skrípamyndir frá smiley central... er einhver bilun í gangi þar eða er þetta bara hjá mér...??  en jæja þá er þessari færslu að ljúka nenni ekki að skrifa meira er búin að sitja svo lengi við tölvuna.. bið að heilsa min venner for livet... knús og kram/.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 14:30:00 / gudrun

páskar..

GLEÐILEGA PÁSKA KÆRU VINIR..

GLEÐILEGA PÁSKA KÆRU VINIR..

KNÚS OG KRAM/.


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 13:45:19 / gudrun

ég elska frí.

Maður er loksins komin í frí, það er heldur betur búið að vera afdrifaríkir dagar hjá mér undanfarið ég festi mig í hálsinum á laugardaginn og það fór alltaf versnandi með hverjum deginum sem leið, ég var farin að gleypa verkjastillandi og sofa á hitapoka og það endaði með því að ég pantaði mér tíma hjá lækni á þriðjudeginum því þá gat ég bara ekkert gert, gat ekki hreyft mig.. Hulda Lára var svo elskuleg að keyra mig á ísó og þar þurfti ég að bíða í klukkutíma samt átti ég tíma hjá vakthafandi lækni.. jæja en þegar hann kom þá sprautaði hann mig með einhveru ógeði og engin smá nál sem fór inn í mig, sagði mér svo að ég væri með svona gíkantíska vöðvabólgu sem væri orðin svona slæm.. og þvílíkt töfraefni sem hann sprautaði í mig með...  VÁ!!  ég gat horft í allar áttir og svo spurði hann hvort ég ætti eitthvað vöðvaslakandi og ég sagi honum að ég hefði verið búin að lifa á íbúfen, já fínt sagi hann 400 milligramma???? nei 200 mg sagði ég!!! og hann hló og skrifaði upp á 600 mg íbúfen og parkodín að auki...  Svo ég er búin að vera misgóð upp á síðkastið en fór svo í nudd til Stebba Dan í gær og er aðeins skárri í dag.

Við erum á leið í fermingar veislu til Fríðu Daggar á eftir út á Núpi... Ég bið að heilsa ykkur í bili kæru lesendur knús og kram/.


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 17:26:37 / gudrun

ný klippt...

 þessi dama er búin að láta klippa sig alveg stutt... og stóð fyrir framan spegilinn og sagði við mömmu sína "mamma veistu hver þetta er??"   já sagí mamman þetta er Lísbet mín ný klippt!!   "nei mamma sagði hún:  "þetta er Steinn"   :haha::haha::haha::haha::haha::haha:

knús og kram/.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 15:03:28 / gudrun

komin heim í heiða dalinn.

já aldeilis frábær helgi afstaðin og margt sem við gerðum skemmtilegt. Hér fáið þið það svona í grófum dráttum.

  • fórum í ikea og rúmfó á laugardginum og ég keypti mér fleiri lök á nýja rúmið mitt og rúmteppi.. ætluðum svo í húsdýragarðinn en það var svo kalt að við vorum sammála um það að fara bara í keilu í staðinn og það var ekki leiðinlegt stelpurnar mínar hafa aldrei fari áður í keilu svo þetta var alveg nýtt fyrir þeim og þær stóðu sig svona líka fruntalega vel voru til dæmis með mikið fleiri stig en ég og margir aðrir fullorðnir... skondið! svo fórum við aðeins í perluna og kíktum á merkjavörumarkað en eitthvað var lítið um úrval því þetta var næst síðasti dagurinn, en eftir það var haldið í mosó og þar fengum við okkur kjúllamáltíð ógó gott uuummm
  • rúsínan í pylsuendanum var samt ballið sem við fórum á austfirðingaball á players.. þetta var algjör snilld fórum á barinn og hittum þar huggulegann barþjón sem bauð okkur Steina í glas.. takk fyrir okkur kæri félagi.. já og svo er ekki oft sem lendir í því að maður sé að dansa og þá kemur bara einhver ókunnugur maður og klípur mann í rassinn "halló" og það gerðist oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, nú svo lenti ég í því hræðilega atviki að gleraugun voru slegin af mér á miðju dansgólfi.... en ég fann þau óbrotin og óbeigluð sem betur fer því það var ansi margt fílk á þessu balli get ég sagt ykkur og fleiri sem dönsuðu á mínum skóm en ég!!!!!     En alveg snilldar gaman!!  Ég hef heldur aldrei á ævinni verið hás, en núna er ég búin að vera hás síðan á sunnudag. Held satt best að segja að að ég hafi ekki mátt við öllum þessum reyk og svo söng ég nú alveg slatti mikið, en eins og ég geri það ekki alltaf?.. 
  • Nú og á sunnudeginum fórum við í fermingarveilsu hjá Hilmari frænda alveg æðislegur matur og yndislegt að hitta alla ættingjana, en það gerist alltof sjaldan fyrir mítt leiti.. jæja og ekki kann ég að forgangsraða hlutunum frekar en fyrri daginn því ég gat alls ekki farið heim án þess að heimsækja ömmu og afa og því brunuðum við til þeirra en á meðan fóru mamma og Hólmgeir af stað þetta var klukan 15.00 en klukkan 15.40 hringdi mamma og spurði hvar við værum og auðvitað ennþá hjá ömmu og afa! hvar annarstaðar??   H'un sagði mér að það hefði orðið sinubruni og við kæmumst ekki heim strax þau rétt sluppu í gegn............ og ég trúði ekki mínum eigin eyrum!! við vorum sem sagt teft í bænum vegna sinubruna í eina og hálfa klukkustund.....
  • þá var notaður tíminn og farið að heimsækja óla afa í  nýju íbúðina og sækja það sem við gleymdum hjá Gunnhildi systir.. það er alveg með ólíkindum en maður gleymir alltaf einhverju... svo um hálf sex héldum við heim á leið og vorum komin heim á miðnætti.. og alltaf er gott að koma heim...

    En segjum þetta gott í bili bið að heilsa ykkur kæru landar knús og kram/. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10